Sigríður Ásta & Pétur Ernir

Sunnudagur 18. maí kl. 13:00

Sigríður Ásta & Pétur Ernir

Pétur Ernir og Sigríður Ásta eru bæði gamlar sálir sem mætast í mússík. Þeim finnst fátt skemmtilegra en að mússísera saman, ögra áhorfendum og sjálfum sér með löngum þögnum og veikum tónum. Efnisskráin er innblásin af gamalli kvikmyndatónlist, enda eru þau bæði væmnari en góðu hófi gegnir og hlakka til að velta sér upp úr öllum tilfinningunum á Björtum Mússíkdögum.

Pétur Ernir útskrifaðist frá Royal Academy of Music með Mastersgráðu í Söngleikjum vorið 2023. Áður stundaði hann nám við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með bakkalárgráðu í píanóleik og söng vorið 2022. Pétur hefur unnið til ýmissa verðlauna bæði tengd söng og píanóleik sínum.

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir er útskrifuð leikkona með BA gráðu frá Copenhagen International School of Performing Arts. Áður hafði hún lært söng við Söngskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann í Vínarborg. Hún hefur verið sjálfstætt starfandi sviðslistakona á Íslandi og víðar síðan 2019.