Rúnar Þórisson ásamt Hálfdáni Árnasyni, Daða Birgissyni og Unni Birnu Björnsdóttur

Laugardaginn 17. maí kl. 16:00

Rúnar Þórisson ásamt Hálfdáni Árnasyni, Daða Birgissyni og Unni Birnu Björnsdóttur

Rúnar Þórisson er kunnur fyrir leik sinn með hljómsveitinni Grafík. Hann hefur að auki sent frá sér sex sólóplötur sem allar hafa hlotið afbragðs dóma og sú sjöunda er nú á leiðinni. Á tónleikunum mun Rúnar ásamt Hálfdáni Árnasyni, Daða Birgissyni og Unni Birnu Björnsdóttur leika tónlist þar sem þær systur dimma og birta takast á og leita sátta í flaumi svartra og hvítra nótna og orða.