Laugardaginn 17. maí kl. 18:00
Krummi & Krákurnar
Krumma þarf vart að kynna en í fljótu bragði má nefna hljómsveitirnar Mínus, Legend og Esja en undanfarin ár hefur Krummi Björgvinsson unnið að sinni fyrstu sólóplötu og færst nær þjóðlaga og söng/lagahöfunda tónlist í sinni sköpun. Þá hafa smáskífur hans Stories To Tell, Frozen Teardrops, Bona Fide og ábreiðan Vetrarsól gert það ákaflega gott síðustu misseri.